Til baka

Lögleg skjöl

Persónuverndarstefna

Arda – Ísland

Hjá Arda – Ísland erum við staðráðin að vernda friðhelgi einkalífs og persónuupplýsingar viðskiptavina okkar í samræmi við persónuverndarstefnu fyrirtækis og núverandi skyldur á íslenskum persónuverndarlögum. Eftirfarandi persónuverndarstefna útskýrir hvernig við söfnum, notum og verndum þær upplýsingar sem til okkar berast í gegnum vefsíðu okkar og/eða aðra þjónustu.

Flokkar persónuupplýsinga

SamskiptaupplýsingarContact information

  • Nafn
  • Kennitala
  • Heimilisfang
  • Símanúmer
  • Netfang

FjárhagsupplýsingarFinancial information

  • Bankaupplýsingar
  • Kortaupplýsingar

Tæknilegar upplýsingarTechnical information

  • IP tala
  • Tækjaupplýsingar
  • Vafragögn

Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga

Við söfnum persónuupplýsingum þínum til að veita þér þjónustu og/eða fá þjónustu frá þér. Þær persónuleguupplýsingar sem við biðjum þig um að fylla út eru upplýsingar s.s. nafn, kennitala, heimilisfang og netfang.

Tengiliðaupplýsingar þínar eru notaðar til að svara fyrirspurnum þínum og veita þér þá þjónustu sem hefur verið beðið um.

Fjárhagsupplýsingar eru nýttar til að vinna úr greiðslum þínum og koma í veg fyrir svik.

Tækniupplýsingar eru notaðar til að bæta árangur síðunnar (arda.is) og öryggi beggja aðila.

Öryggi gagna og persónuupplýsinga

Arda miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila án þíns samþykkis. Okkur er heimilt að deila nauðsynlegum upplýsingum með þjónustuaðilum sem vinna fyrir okkar hönd svo hægt sé að veita umbeðna þjónustu, ljúka við verkefni eða veita vöru sem hefur verið gert samkomulag um.

Í þeim tilfellum sem vinnsluaðili sem starfar á okkar vegum fær aðgang að persónuupplýsingum, tryggjum við trúnað og öryggi. Gögnum er síðan eytt að vinnslu lokinni. Arda leigir eða selur aldrei persónulegar upplýsingar um okkar viðskiptavini eða notendur heimasíðu.

Arda leggur áherslu á viðeigandi öryggisráðstafanir til að vernda gegn óheimilum aðgangi, breytingum, birtingu eða eyðileggingu á persónuupplýsingum þínum.

Dulkóðunartækni og aðrar öryggisráðstafanir, s.s. aðgangsstýring, eru notaðar til að tryggja að fjárhagsupplýsingar þínar berist á öruggan hátt.

Við fylgjumst með kerfum okkar fyrir öryggisbrestum og griðum til viðeigandi aðgerða með sérstöku tilliti til eðlis þeirra.

Breytingar á persónuverndarstefnu

Við gætum uppfært þessa persónuverndarstefnu til að endurspegla breytingar á gildandi lögum. Við munum tilkynna þér um allar mikilvægar breytingar með því að birta tilkynningu á vefsíðu okkar eða með því að hafa beint samband við þig.

Lokaorð

Allar fyrirspurnir um meðhöndlun persónuupplýsinga og persónuverndarstefnu Arda – Ísland skal senda á netfangið:

Hafðu samband við okkur á arda@arda.is vegna allra spurninga tengdum persónuvernd og meðhöndlun persónuupplýsinga.